19. desember 2008

Kvöld 8

Það var ótrúlega góð mæting á miðvikudaginn. Alls voru 8 að spila og þar sem það var byrjað í seinna lagi og margir að spila þá dróst þetta fram eftir kvöldi. Ég sjálfur datt snemma út svo ég náði ekki að fylgjast með lokaspennunni en í stuttu máli þá vann Þrándur. Haukur bró í 2. sæti og Svenni jók forskot sitt með því að ná í 1 stig.

Næsta mót er áætlað 7. janúar en ég ætla einmitt að senda út skoðanakönnun til ykkar þar sem við getum planað lokamótið og hvort það verði eitt mót fyrir lokamótið eða ekki.

1 ummæli:

Thrandur sagði...

Ég gæti líklega haldið mótið þann 7.jan heima hjá mér.

Varðandi lokahóf þá hef ég ekki sterkar skoðanir á þessu; hafði samt planað að mæta í þrettándagleðina hjá Hjalta.