4. janúar 2009

Lokahóf

Ég sendi út smá skoðanakönnun fyrir jól eða áramótin og fáir svöruðu en þó 4 með mér. Þar kom í ljós að 75% vildu hafa lokahófið 17. janúar, en þar sem sá dagur er eiginlega frátekinn fyrir afmælisveislu tvöfalds meistara 3ja Para þá finnst mér við ekki geta haft það á þeim degi.

Persónulega finnst mér samt meira gaman að hafa lokamótið á þannig degi að við getum nú drukkið meira en venjulega. Því gætum við haft þetta á föstudegi. 9. eða 16. jan. eða fyrir þrettándaveislu Hjalta laugardaginn 10. jan.

Upp hefur komið uppástunga að lokamótið verði núna á miðvikudaginn. Ef meirihlutinn er hlyntur því þá tek ég því, en eins og fyrr segir fyndist mér meira gaman að hafa þetta á flöskudegi :)

En það þurfa helst flestir toppmennirnir að geta mætt á lokamótið og skemmtilegast að hafa sem flesta. Hlynur segist ekki geta mætt laugardaginn 10. jan, hvað með föstudagana sem um ræðir?

Endilega skrifið hvað ykkur finnst.

Hver er til í að halda mótið núna á miðvikudaginn og hverjir mæta pottþétt (fyrir utan mig)?

Þrándur kom með skemmtilega athugasemd fyrir lokahófið: Hver sá sem tekur út annan mann þarf að drekka einn bjór. Annars er refsing, 100 kr/mín þar til bjórinn er búinn.

8 ummæli:

  1. Ég mæti á miðvikudaginn.
    Get mætt á lokahóf 9, 10 og 16 jan.
    Vil helst hafa lokahóf á flöskudegi.

    SvaraEyða
  2. ég get eiginlega ekki komið á miðvikudaginn 7. jan. Langar að hafa lokahóf um helgi

    SvaraEyða
  3. Ég get kannski haldið þetta á miðvikudaginn kemur, þarf að ráðfæra mig við konuna.

    Ég kemst ekki heldur 10. jan, en ég held ég komist báða föstudagana.

    SvaraEyða
  4. ég kemst á miðvikudaginn en ekki laugardaginn 10.

    SvaraEyða
  5. er líklega upptekinn næsta föstudag en er laus þann næsta

    SvaraEyða
  6. Ég er á sömu skoðun og haukur, þurfum að hafa lokahófið á fyrsta eða öðrum í flöskudegi. Ég get mætt báða næstu föstudaga en mér sýnist laugardagarnir vera algjörlega off. Hvenær fer Hlynur aftur til danmerkur, er föstudagurinn 16 ekki örugglega síðasti séns á að halda þetta?

    SvaraEyða
  7. Jú eins og staðan er núna þá lítur út fyrir að Þrándur verði með mótið á miðvikudaginn og lokamótið föstudaginn 16. jan.

    ALLIR SÁTTIR?

    SvaraEyða
  8. það hljómar fínt. Ég get líka haldið þetta ef þrándur verður í vegi Þrándar.

    SvaraEyða